Síta – Sigríður Jónsdóttir – minningarorð
Sigurður Árni Þórðarson @ 20.42 22/10
Vestur í Stykkishólmi urðu ævintýrin við hvert fótmál. Mannlífið var fjölskrúðugt og margir krakkar til að leika við. Hægt var að flengjast í reiðtúra eða leika sér við sjóinn. Varfærni var þörf, hættur voru hvarvetna. Áfram…
Er Guð leikstjóri eða elskhugi?
Sigurður Árni Þórðarson @ 21.16 16/10
Í vikunni var ég kallaður í lífsleiknitíma niður í Kvennaskóla til að ræða við einn bekkinn um sorg og sorgarviðbrögð. Það er gjöfult að hitta unga fólkið. Þau tjáðu hvernig þau vinna með og hugsa um sorg, eftirköst og viðbrögð við áföllum. Áfram…
Haukur Þorvaldsson – minningarorð
Sigurður Árni Þórðarson @ 20.24 16/10
Fyrir tæpu ári síðan sátum við Haukur hér frammi á kaffitorgi Neskirkju. Hann sat við horngluggann og talaði um stóru spurningarnar í lífinu, um fólkið sitt, áhrif veikinda á líf hans og afstöðu. Það var heillandi að hlusta á hann. Í bland við alvöruna var stutt í kátlegar athugasemdir. Áfram…
Áttu vini eða bara kunningja?
Sigurður Árni Þórðarson @ 20.20 30/9
Vinir
Áttu vin eða vinkonu? Staldraðu við og hugsaðu um það fólk, sem þú umgengst. Eru einhver þeirra vinir þínir? Treystir þú honum eða henni – eða þeim – fyrir því sem er innst í þér? Eða eru þetta allt bara kunningjar, skemmtilegir til að tala við og hlægja með eða vinna, en nei – þeim er kannski ekki trúandi fyrir leyndarmálum þínum. Áfram…
Hildur Þórðardóttir – Minningarorð
Sigurður Árni Þórðarson @ 20.53 20/9
Minningarsamvera um Hildi. Staldraðu við, leyfðu minningum að lifna hið innra. Hver er skemmtilegasta minningin, sem þú átt um hana? Leyfðu henni líka að koma fram í hugann. Áfram…
Kvennahlutverk og Ayaan Hirsi Ali
Sigurður Árni Þórðarson @ 15.51 16/9
Í anda Jesú Krists viljum við menntun og stöðuréttingu kvenna til jafns við karla. Í anda Jesús Krists mótmælum við limlestingum á konum hvar sem er í heiminum. Prédikun 16. september er um hlutverk kvenna og það að leyfa feðraveldinu bara að detta!
Leiðarvísir um meðferð óvina
Sigurður Árni Þórðarson @ 15.48 16/9
Er ástin bara fyrir “ástvini”? Eða er ástin fyrir fleiri, jafnvel óvini? Getur verið að elskustefna Fjallræðunnar sé leiðarvísir fyrir engla en ekki venjulegt fólk í tvíbentum heimi? Prédikun Sigurðar Árna 2. september er undir þessari smellu.
Drauma vitjað
Sigurður Árni Þórðarson @ 13.05 19/8
Hvað er á bak við drauminn um ríkidæmi, “ógeðslega flotta íbúð,” kaup á fótboltaliði og vonina um að verða vel launaðir lögfræðingar? Draumar unga fólksins á fermingaraldri voru kortlagðir. Í ljós kom að þeir eru stórkostlegir lífsdraumar.
Áfram…
Esther Þórðardóttir – minningarorð
Sigurður Árni Þórðarson @ 08.45 18/7
Lífið verður best þegar börnin lifa, ekkert verður til að spilla og dauðinn kemur ekki of snemma. Mömmur gleyma ekki, brjóstabörnin týnast aldrei. En hvað gerist þegar slitið er á milli? Úför Esterar Þórðardóttur var gerð frá Neskirkju 16. júlí 2007 og minningarorðin eru hér að neðan.
Áfram…
Trú eða óregla
Sigurður Árni Þórðarson @ 15.55 21/1
Samræmist trú að misnota skjólstæðinga í meðferð? Leyfir Guð að einstaklingar noti fé, sem á að fara til líknar, í eigin rekstur? Nei. Að flagga biblíuorðum og hafa hátt um trú tryggir ekki siðsemi, fjármálavit eða meðferðarvit. Trúin er tengslamál sem setur mörk og eflir líf. Áfram…
Ástarsaga Guðs og Rósu
Sigurður Árni Þórðarson @ 20.36 17/1
“Lífið er ástarsaga sagði sjö ára stúlka þegar hún kom úr kirkjunni. Sú stutta var að koma úr útför Rósu frænku, sem fór fram frá Neskirkju 17. janúar. Hún var með á vörum boðskap minngarorðanna um Ingveldi Rósu Bjarnadóttur.
Áfram…
Raddir til lífs
Sigurður Árni Þórðarson @ 10.39 14/1
Við erum ekki elskuð af því við erum góð, heldur verðum við góð af því Guð elskar okkur. Veröldin er Guðsraddakór. Guð kallar hið innra, í líkama okkar, heima og í vinnunni. Ef við bregðumst við eins og Sakkeus skerpist heyrn á raddir lífs.
Áfram…
Karlar með Jesú í feðraorlof
Sigurður Árni Þórðarson @ 10.31 7/1
Ef pabbarnir hafa næði til heimaveru geta þeir betur tekið þátt í trúaruppeldi. Verndum feðurna, þá eflum við heilsu fólks og heimilislíf, blessum börnin og Jesús gleðst með fangið fullt af hamingjusömu fólki. Áfram…
Ár og tár
Sigurður Árni Þórðarson @ 17.41 31/12
Lífið er til unaðar en ekki til dauða. Prédikun í Neskirkju á gamlársdag fer hér á eftir. Áfram…
Jólaljós í Litlabæ 2006
Sigurður Árni Þórðarson @ 16.00 26/12
Með þessum jólaljósum 2006 úr baðstofunni okkar óskum við Litlabæjarfólk þér og þínum gleðiríkra jóla og gæsku á nýju ári.
