Nautakjöt pönnusteikt – Týnda syninum fagnað
Sigurður Árni Þórðarson @ 22.23 27/2
Þú verður nú að skrá þessa uppskrift sagði mitt fólk við kvöldverðarborðið. Er í tilraunum með biblíumat og var að gera tilraun með þurrkaða ávexti. Það skal tekið fram að þau sem glöddust mest yfir matnum voru að koma úr World Class, sem er hluti ánægjuskýringarinnar. Áfram…
Næðifæði takk – engan skyndibita
Sigurður Árni Þórðarson @ 21.25 27/1
Hvaða fæða verður þér til góðs og hver ekki? Sum okkar erum með óþol gagnvart ákveðnum mat og jafnvel ofnæmi. Við þörfnumst allra fæðuflokkanna til að stuðla að heilbrigði. Fæðan skiptir máli. Hvað við setjum ofan í okkur varðar vellíðan og heilsu. Áfram…
Þórður Jón Pálsson – Minningarorð
Sigurður Árni Þórðarson @ 16.26 24/1
Hvernig getum við lifað vel? Arfi okkar breytum við ekki, en við erum þó öll frjáls að hvernig við lifum. “Réttu úr þér” sagði Þórður við þau sem voru bogin. Okkar ábyrgð er að vinna með það, sem gefið er og ávaxta við hæfi. Áfram…
Guð er bonus!
Sigurður Árni Þórðarson @ 13.59 20/1
Hvaða ljóðabók var söluhæst á síðasta ári? Sú sama og árinu þar áður líka og hefur verið um mörg ár. Það er sálmabók þjóðkirkjunnar. Hún er jafnan stærsta ljóðabók hvers árs og sú orðflesta líka. Áfram…
Sól og Sigrid Österby
Sigurður Árni Þórðarson @ 13.25 19/1
Sigrid Österby kom oft hingað í Neskirkju. Henni líkaði fjölbreytni kirkjustarfsins, tók þátt í mörgu og kynntist starfsfólki kirkjunnar. Í unglingastarfinu er margt brallað og víða farið. Fyrir tæpu ári efndi unga fólkið til helgistundar í Vesturbæjarlauginni undir heitinu bjartsýnisbusl. Þetta þótti Sigrid skemmtilegt Áfram…
Bull, ergelsi og pirra?
Sigurður Árni Þórðarson @ 20.38 6/1
Þrettándi dagur jóla, lok jóla. Þrettándinn var og er skemmtilegur dagur. En skelfing getur hversdagsleikinn bak jólum orðið þykkur og janúarmyrkrið svart! Það er því skiljanlegt, að á þrettándanum hafi verið íhugað og skoðað það, sem gat veitt birtu fram á veginn. Áfram…
Eldsókn
Sigurður Árni Þórðarson @ 20.24 6/1
Íslenski þjóðsöngurinn varð til í krafti Davíðssálms, sem er númer 90 og nefnist bæn guðsmannsins Móse. Þetta er lexía dagsins í dag og svo syngjum við þjóðsönginn í lok messunnar. Guðsmaðurinn biður fallega: “Drottinn, þú hefur verið oss athvarf frá kyni til kyns. Áður en fjöllin fæddust og jörðin og heimurinn urðu til, frá eilífð til eilífðar ert þú, ó Guð.” Áfram…
Lífið er draumur
Sigurður Árni Þórðarson @ 10.17 25/12
Þegar fólkið þitt spyr þig heima á eftir: “Hvernig var í messunni í Neskirkju?” þá getur þú svarað: “Það var alger draumur.” Jú, vegna þess að í kvöld íhugum við drauma í fornöld, draum Guðs og svo þinn eigin draum. Áfram…
Geir Helgi Geirsson – minningarorð
Sigurður Árni Þórðarson @ 15.09 14/12
Geir las alltaf notkunarleiðbeiningarnar! Í sálmaskránni er dásamleg mynd af honum að skoða kort og gögn. Hann vildi vita hvernig hlutir voru gerðir og hvernig ætti að fara með þá til að vel gengi og skemmdum væri varnað. Áfram…
Haraldur Karlsson – minningarorð
Sigurður Árni Þórðarson @ 20.56 10/12
Líf Haraldar Karlssonar var dramatískt. Afköst hans í lífinu voru óvenjumikil, lífshlaupið fjölbreytilegt, hæfileikar hans ríkulegir og víðfeðmir, sjarminn óumdeilanlegur og tilfinningarnar djúpar. Margt er óvenjulegt og íhugunarvert, en ekkert er þó eins sláandi og barnríki hans. Tveir barnahópar, tvær mæður, tvennar sjöur – fjórtán börn. Áfram…
Myndir á aðventu
Sigurður Árni Þórðarson @ 21.48 9/12
Tveir kórar í kirkju í dag. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og svo er hér Kór Orkuveitunnar sem syngur líka í dag. Þessi kóraglans minnir mig á sögu af kórsöng norður á Akureyri. Það var árið 1915 og skáldpresturinn Matthías Jochumsson var áttræður. Gríðarstór kór var kominn upp á svið Áfram…
Krísa á dómsdegi
Sigurður Árni Þórðarson @ 17.11 27/11
Í dag er dómsdagur! Biblíutextarnir eru um dóm og heimsendi. Af hverju dómsdagur í dag? Eigum við að hræðast og fara í keng. Eða kemur dómsdagur Biblíunnar okkur ekkert við? Eru þessir textar kannski bara tjáning á fornum heimsslitakvíða, áhugaverð en þó úrelt hugmyndafræði, sem við geymum best á menningarminjasafni eða bókasafni? Áfram…
Lifað í spíral
Sigurður Árni Þórðarson @ 21.02 22/10
Í lífinu förum við einatt í spíral, sem er gott og betra en að hringsóla! Eftir langferð í vinnu, búsetu eða einkalífi leitum við oft til “baka” í einhverjum skilningi. Ég kom eftir stóra hringferð á minn reit og lenti í bæ afa og ömmu með mitt fólk. Benskuminningar og búsetubrot setti ég niður að beiðni Vesturbæjarblaðsins sem birti í októberblaði 2007. Áfram…
Síta – Sigríður Jónsdóttir – minningarorð
Sigurður Árni Þórðarson @ 20.42 22/10
Vestur í Stykkishólmi urðu ævintýrin við hvert fótmál. Mannlífið var fjölskrúðugt og margir krakkar til að leika við. Hægt var að flengjast í reiðtúra eða leika sér við sjóinn. Varfærni var þörf, hættur voru hvarvetna. Áfram…
Er Guð leikstjóri eða elskhugi?
Sigurður Árni Þórðarson @ 21.16 16/10
Í vikunni var ég kallaður í lífsleiknitíma niður í Kvennaskóla til að ræða við einn bekkinn um sorg og sorgarviðbrögð. Það er gjöfult að hitta unga fólkið. Þau tjáðu hvernig þau vinna með og hugsa um sorg, eftirköst og viðbrögð við áföllum. Áfram…