sigurðurárni.annáll.is

AnnállBænircvGreinarLitlibærMataruppskriftirMyndirPistlarPrédikanirSkírnÚtfararræður
  • Annálar

  • Tenglar

  • Eldri færslur

  • Leit

Heimsljós

Sigurður Árni Þórðarson @ 11.57 15/12

Hvað segir maður þegar maður gerir krossmerki framan á sig? Spurningunni var beint til barnahóps í kirkjunni. Ég átti von á, að hið hefðbundna kæmi: “Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda.” Einn drengurinn rétti snarlega upp hendi og vildi fá að svara og sagði fullviss og ákveðinn: Maður segir: “Ég er ljós heimsins!”

Þetta var auðvitað óvænt en flott svar! Áfram…

Laufey S. Guðjónsdóttir – minningarorð

Sigurður Árni Þórðarson @ 09.25 12/12

Laufeyjartraustið er stórkostlegur vitnisburður, sem við megum hrífast af og læra af. Nú sefur hún ekki aðeins undir myndinni af Jesú, heldur vakir glöð í Jesúhimninum. Útför Laufeyjar var gerð frá Neskirkju, 10. desember. Minningarorðin eru hér á eftir. Áfram…

Björn Guðjónsson – minningarorð

Sigurður Árni Þórðarson @ 15.05 6/12

Hann var sem einn af postulunum, einn af lífsins höfðingjum, sem hafa litað líf okkar hinna og gert það skemmtilegra og betra. Minningarorð um höfðingjann Björn Guðjónsson eru hér á eftir. Áfram…

Best heppnaða útrásin

Sigurður Árni Þórðarson @ 10.57 10/11

Mörg úthlaup Íslendinga hafa mistekist hrapalega, nokkur hafa lukkast, en best heppnaða útrás Íslendinga er íslenska kristniboðið. Áfram…

Hanna Soffía Blöndal – minningarorð

Sigurður Árni Þórðarson @ 18.36 7/11

Hanna hlær ekki lengur en gleðin hennar lifir. Hanna horfir ekki lengur ástaraugum á þig en elskan lifir samt í þér, í veröldinni. Útför Hönnu Soffíu Blöndal var gerð frá Fossvogskirkju 7. nóvember. Minningarorðin eru hér á eftir. Áfram…

Heródesarkjúklingur – uppskrift til unaðar

Sigurður Árni Þórðarson @ 15.09 7/11

Hani Pílatusar er frægasti hani veraldar. En hæna Heródesar er síður kunn en hefur örgglega verið matreidd með kúnst fagurkerans. Hér er uppskrift að tilgátu-Heródesarkjúkling sem áttatíu manns nutu á Torginu 6. nóvember. “Þetta ætla ég að elda um helgina” sögðu nokkur. Presturinn mælir með því og uppskriftin fer hér á eftir. Áfram…

Reiðin og Íslandshrun

Sigurður Árni Þórðarson @ 15.01 26/10

Dósirnar?
Í síðustu viku var Íslendingur á fundi í Þýskalandi. Félagar hans í fjölþjóðlegu fyrirtæki og frá mörgum Evróplöndum voru samankomnir til vinnudags. Allt gekk vel, okkar maður tók fullan þátt dagskrá og málum. Áfram…

Biblíukjúllinn

Sigurður Árni Þórðarson @ 11.31 21/10

“Ég kem nú ekki oft í kirkju,” sagði kona við mig, en ég stóðst ekki þessa freistingu. Þetta var góður matur, bætti hún við. Fjölmenni var í fyrstu biblíumáltíð Neskirkju, sem eru á fimmtudögum í hádeginu. Biblíumatur er bragðgott heilsufæði. Uppskrift Maríukjúklingsins er meðfylgjandi. Áfram…

Núlstillt í kreppunni og nýr tími

Sigurður Árni Þórðarson @ 10.06 13/10

Kairos, upphaf, ný öld. Liðin vika er tími fæðingarhríða. Nýr tími er að koma í heiminn. Við þurfum að staldra við og hugsa um hamingjuna, siðvit okkar og um gleðina, um hláturinn, um ástina. Prédikun sr. Sigurðar Árna 12. október er undir þessari smellu.

Háski, gáski og köllun manns

Sigurður Árni Þórðarson @ 16.56 28/9

Málmur og gipsverk Steinunnar Þórarinsdóttur spyrja um líf. Textar Biblíunnar spyrja um tilgang. Til hvers erum við kölluð, gáska eða háska. Prédikun á opnunardegi Steinunnarsýningar er hér á bak við þessa smellu.

Biblían er matarmikil

Sigurður Árni Þórðarson @ 22.19 23/9

Jesús var mikill veislumaður, en hvers konar mat borðaði hann? Hvernig voru veislur Ísaks eða kónganna Davíðs, Salómons og Heródesar? Vitum við eitthvað um þennan mat? Já, í öllum ritum Biblíunnar er eitthvað vikið að mat, borðhaldi eða fæðutengdum efnum. Áfram…

Heimsendir í nánd?

Sigurður Árni Þórðarson @ 11.07 15/9

Friður sé með þér. Kannski er ekki vanþörf á óska þér friðar, þínum líka og öllum söfnuðinum því liðna viku hefur heimsendir vofað yfir, ógnað veröldinni – eða svo hafa margir sagt.

Öreindahraðall í nágrenni Genf í Sviss var gangsettur síðastliðinn miðvikudag. Áfram…

Dauði eða kirkja lífs

Sigurður Árni Þórðarson @ 21.27 19/8

Til hvers reglur? Trúarlíf, kirkjulíf, guðsdýrkun eru á villigötum, ef náunginn gleymist. Fagrir helgisiðir eru til lítils, ef menn deyja við heimreiðar kirkna. Prédikun Í Neskirkju 17. ágúst 2008 er á bak við þessa smellu.

Sjokkerandi

Sigurður Árni Þórðarson @ 21.37 23/6

Annars vegar græðgi – en hins vegar opin vitund. Annars vegar ótrúlegur afli til dauða – en hins vegar ótrúlegur afli til lífs. Tvær mokveiðisögur en hvað svo? Prédikun 22. júní 2008. Áfram…

Ingibjörg Einarsdóttir – minningarorð

Sigurður Árni Þórðarson @ 20.54 23/6

Ingibjörg EinardóttirHún gat alveg lifað fullkomlega í núinu af því hún átti sér gildi, ramma, reglur og vit. Í henni bjó núafstaða sem rímar við hið eilífa nú. Útför Ingibjargar Einarsdóttur var gerð frá Neskirkju 23. júní. Minningarorðin eru hér á eftir. Áfram…

« Fyrri færslur   Næstu færslur »

© sigurðurárni.annáll.is · Færslur · Ummæli