Halldórsmessa í Neskirkju
Sigurður Árni Þórðarson @ 09.05 15/6/06
Sjö prestar hafa starfað í þágu Nessafnaðar í nær fimmtíu ára sögu safnaðarins í vesturbæ Reykjavíkur. Sr. Halldór Reynisson var fimmti Neskirkjupresturinn og þjónaði söfnuðinum í sex ár, frá 1995. Hann stýrir nú fræðslusviði á Biskupsstofu. Sunnudaginn 18. júní prédikar sr. Halldór í Neskirkju og þjónar fyrir altari. Organisti er Friðrik V. Stefánsson. Félagar úr kór Neskirkju syngja en kórinn er nýkominn heim úr tónleikaferð til Ítalíu. Messan hefst kl. 11.
Undirbúningur hátíðahalda vegna fimmtíu ára afmælis er hafinn í Neskirkju. Kirkjan var vígð á pálmasunnudegi 1957 og því verður afmælið haldið hátíðlegt á þeim kirkjudegi á næsta ári. Stutt yfirlit um sögu kirkju og safnaðar er finna á heimasíðu Neskirkju.
Messan á sunnudag er upptaktur hátíðaundirbúnings afmælis. Allir velkomnir í messur í Neskirkju.