Biblíusjón í Neskirkju
Sigurður Árni Þórðarson @ 11.22 27/1/05

vaða gleraugu notar þú til að lesa Biblíuna? Hver er þinn skilningur á hlutverki hennar? Í messu í Neskirkju, sunnudaginn 30. janúar verður fjallað um biblíunotkun og biblíuskilning. Prédikað verður tematískt og þá um biblíuskilning og augun sem við notum við lesturinn.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttur þjónar fyrir altari með mér og útdeilir. Organisti verður Steingrímur Þórhallsson og Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Börnin byrja í messunni, en fara síðan í safnaðarheimilið. Kaffihúsið verður opið og kaffið “trúlega” gott. Þú ert velkomin(n) í Neskirkju, með eða án Biblíugleraugna.
Eftir messu verður svo prédikun dagsins endurflutt og rædd á útvarpi Sögu. Stólræða á þeim stéttum verður upp úr kl. 13. Vert er að vekja athygli á að allar messur í Neskirkju birtast á netinu. Farið er á www.neskirkja.is eða smellt á þessi orð til að komast á útsendingarslóð Neskirkju.