Neskirkja og blessun safnaðarheimilis
Sigurður Árni Þórðarson @ 16.20 10/9/04
Hinu nýja safnaðarheimili Neskirkju er ætlað að verða torg fyrir fólk. Húsið er afar vel heppnað og góð umgjörð dafnandi safnaðarlífs. Biskup Íslands blessar húsið eftir messu sunnudaginn 12. september. Þú ert velkomin(n).
Opin kirkjukórsæfing hefst kl. 10 en messan hefst síðan kl. 11. Í messulok hennar mun biskup ganga fyrir syngjandi söfnuði úr kirkju og inn í safnaðarheimili. Eftir blessun þess mun dr. Guðmundur Magnússon, formaður sóknarnefndar, skýra undirbúning og byggingu hússins. Prestar kirkjunnar munu ræða um framtíðarnotkun. Hanna Johannesen flytur ávarp. Sóknarnefnd býður til hússkoðunar og veitingar verða á boðstólum.
Í safnaðarheimilinu verður kaffihús opnað kl. 15 og verður síðan opið daglega. Kirkjukaffi er engin nýjung en kaffihús í kirkju er bylting. Þá eru í húsinu fræðslustofur og salur auk vinnuaðstöðu fyrir starfsmenn kirkjunnar.
Neskirkja var fyrsta nútímakirkjan í Reykjavík. Þetta safnaðarheimili er hannað og hugsað sem nútíma-safnaðarheimili. Áherslan verður á fjölbreytilegt starf, efnt verður til samræðna um trú og ýmsa menningarvíddir, listir, stefnu í samfélags- og menningar-málum. Helgi Þorgils Friðjónsson sýnir myndverk í nýja safnaðarheimilinu.
Þennan húsblessunardag verður hausthátið Vesturbæjar haldin á lóð Neskirkju og í
nálægum húsum. Hausthátíð er hverfishátíð í samvinnu kirkju, skáta og KR. Það er því mikið um að vera í Vesturbænum og hugur í fólki.
Dagskráin er þessi:
Sunnudagur 12.september 2004
Vesturbæjarlaug
klukkan 10:00 -KR þríþraut; sund, hjólreiðar og hlaup -skráning á staðnum
- Frítt í sund kl.09.00 12.00
Neskirkja
klukkan 10:00 -Opin kirkjukórsæfing
klukkan 11:00 Messa og úsblessun nýs safnaðarheimilis.
klukkan 15:00 – Kaffihúsið opnað
Skátaheimili, Neskirkja og íþróttahús Hagskóla
klukkan 12.00-14.00 -Skemmtidagskrá
-Skemmtiatriði, leiktæki og kynningar á vetrarstarfi á vegum frístundamiðstöðvarinnar Frostakjól, skátafélagsins Ægisbúa, KFUM og K, félagsmiðstöðvarinnar Aflagranda, KR, Hagaskóla ofl.
-Gos og pylsur í boði Ægisbúa
Nú er bara að drífa sig af stað.