Líkræður á vefinn?
Sigurður Árni Þórðarson @ 20.56 8/7/04
Er prestum heimilt að birta líkræður á vefnum eða ekki? Þegar ég stofnaði til eigin heimasvæðis fyrri hluta maí sl. tók ég þá ákvörðun að birta þar líkræður, sem ég flyt við útfarir. Ég hef fregnað að lesendur hafi rætt um réttmæti slíkra birtinga. Nokkrir hafa verið hissa og ekki búist við svona nútímavæðingu klerklegrar þjónustu. Búast má við að ef menn eru almennt sammála um að birting sé kirkjulega og guðfræðilega réttlætanleg muni þeim fjölga snarlega með fjölgun heimasíða kirkna og presta.
Til skýringar skal það sagt, að ég spyr aðstandendur hvort þeir/þau vilji að ég birti minningarorðin á vefnum. Aðeins þær ræður eru birtar, sem aðstandendur hafa heimilað að fari á vefinn. Engar ræður, sem eru fluttar við útför í kyrrþey fara á vefinn.
Mér virðist að reynslan af vefbirtingunni hafi verið góð. Aðstandendur hafa strax haft möguleika á að nálgast ræðuna, lesa hana yfir og prenta hana út. Nokkrir hafa tjáð mér, að skilningur þeirra á ræðunni og tilgangi hennar hafi dýpkað við lesturinn.
Ég hef sett mér að meginreglu að skjóta ræðunni strax á netið að lokinni útfararathöfninni. Aðstandendur erlendis hafa því samdægurs getað lesið hana. Ég hef einnig fregnað, að í nokkrum tilvikum hafi þetta verið fjarstöddu fólki mikilvægt og létt þeim sársaukann að hafa ekki getað sótt útför ástvinar eða vinar.
Prestar hafa oftast talsvert fyrir útprentunum á ræðum og að koma þeim til aðstandenda. Ég hef algerlega losnað við þennan þátt með birtingunni. Það er auðvitað heilmikil vinna sem kemur á móti, þ.e. að ganga frá textanum til opinberrar birtingar. Upplestur er eitt, vefurinn er allt annað.
Auglýstar útfarir eru opinberar athafnir og öllum heimilt að sækja þær. Ég hef talið, að birting minningarorða sé til að auka þjónustu kirkjunnar við syrgjendur. Jarðarförum var útvarpað í eina tíð. Vefbirting líkræðna er hliðstæða slíkrar útvörpunar?
Það er ekkert sjálfsagt við þessa birtingu? Telur þú birtingu minningarorða til gagns eða ógangs? Þar er hægt að tjá skoðanir um efnið hér að neðan. Gerið svo vel að tjá ykkur.