Sjálfstæðisyfirlýsingin og Bandaríkin
Sigurður Árni Þórðarson @ 15.59 3/7/04

Mér þykir vænt um Bandaríki Norður Ameríku. Ég naut bandarískra styrkja og þeirrar gæfu að nema við bandarískan háskóla. Ég kynntist mörgum og flest eru þau og voru úrvalsfólk. Ég komst að því margt af því besta, sem heimsmenningin hefur alið, varð til í Bandaríkjunum.
Á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna fagna ég. Alltaf hefur mér þótt skemmtilegt, að fáni þeirrar þjóðar skuli hafa sömu liti og hinn íslenski. Svo blakta þeir saman í vindinum. Um allan heim blaktir tákn stoltrar þjóðar Bandaríkjanna á þessum degi. Frelsisbarátta þjóða litar jafnan hátíðisdaga hennar. 4 júlí er þjóðhátíðardagur vegna þess að þann dag árið 1776 var samþykkt Sjálfstæðisyfirlýsing hinna þrettán nýlendna, The Declaration of Independence of the Thirteen Colonies.
Vegna predikunarvinnu fyrir 4. júlí fór ég að lesa frelsisskrána amerísku. Sjálfum finnst mér með ólíkindum, að mér hafi tekist að læra hér heima, vera og nema í Bandaríkjunum og hafa ekki fyrr lesið þetta gagnmerka plagg. En það á svo sannarlega erindi við fólk, sem hefur áhuga á gildum samfélaga, stjórnun, réttlæti, já og lífinu.
Sjálfstæðiyfirlýsing Bandaríkjanna fjallar um frumrétt fólks til lífs, frelsis og sóknar í hamingju. Rétt eins og Marteinn Lúther en ekki Thomas Jefferson væri við pennann segir í yfirlýsingunni, að til að fólk og þjóðir geti notið þessara grunngæða séu stjórnvöld stofnsett. Valdið er frá fólkinu og stjórnvöld stýra í krafti þess valds. Þegar þau bregðast skyldu sinni er rétt og skylt að kollvarpa stjórnvöldum. Hér er grunnhugsun lýðræðis og mannréttinda því sett á blað. Fólk á rétt á lífi og lífsgæðum. Hlutverk stjórnvalda og þar með stofnana og einstaklinga er að verja þau gæði. Mannvirðingin er leiðarstjarna yfirlýsingarinnar og er endurómur kristinna grunngilda.
Það er athyglisvert að lesa hina löngu röð ávirðinga og ákæra á hendur breskum stjórnvöldum, sem rituð eru í sjálfstæðisyfirlýsingunni. Ef aðeins helmingur var sannur var það nóg til viðbragða af hálfu nýlendumanna í Ameríku.

Fáni Bandaríkjanna blaktir um allan heim. Bandarísk áhrif eru gríðarleg. En mér hefur sýnst, að bandarísk pólitík hafi versnað síðustu árin. Mér eins og mörgum Bandaríkjavinum hefur sárnað hve utanríkispólitík þjóðarinnar hefur verið skeytingarlaus um tilfinningar og stefnu annarra þjóða og hópa. Bandaríkjamenn hafa farið offari í Íraksstríðinu að mínu viti eins og næstum allar kirkjudeildir Bandaríkjamanna hafa bent á. Kannski hefur Bush og stjórn hans fallið í þá gryfju að taka upp nokkra stjórnhætti Georg III? Sjálfstæðiyfirlýsingin er til að efla heimsbyggðina og Bandaríkjamenn eiga í sögu sinni stöðuga áminningu.
Texti guðspjallsins (6. kafla Lúkasarguðspjalls) á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna er flottur og talar til okkar allra líka Bandaríkjamanna. Hann fjallar m.a. um bjálkann og flísina. Hann minnir okkur líka á að dæma ekki, þ.e. hafa góða dómgreind og hrapa ekki að sleggjudómum. Allir ættu að staldra við, hlusta á Jesú og lesa líka Sjálfstæðisyfirlýsinguna. Þar fæst nokkuð góð blanda af efni fyrir gott mannlíf! Gleðilega hátíð Bandaríkjamenn. Til hamingju heimsbyggð að Bandaríkjamenn skuli eiga bæði góða sjálfstæðisyfirlýsingu og stjórnarskrá.
Á morgun kemur svo predikun og er fjallað um flísadrátt og bjálkabis.