Ertu nafnvís?
Sigurður Árni Þórðarson @ 22.49 15/5/04
Stórkostlegt safnaðarheimili er að rísa við Neskirkju. Húsið er nafnlaust og bíður þess að nafnvís vitji þess. Sóknarnefnd Neskirkju efnir nú til samkeppni um nafn á safnaðarheimili kirkjunnar. Húsið verður tekið í notkun í september nk. Tillögu um nafn er er hægt að senda annað hvort rafrænt eða beint til Neskirkju. Á heimasíðu kirkjunnar www.neskirkja.is er eyðublað. Engin takmörk eru fyrir fjölda tillagna frá hverjum aðila. Óskað er að útskýring fylgi tillögum, sem berst fyrir 15. ágúst.
Dómnefnd mun forvelja úr innsendum tillögum og leggja snjöllustu tillögurnar fyrir sóknarnefnd til endanlegrar ákvörðunar. Dómnefnd skipa dr. Hjalti Hugason, prófessor, Inga Jóna Þórðardóttir, háskólaráðsmaður og Matthías Johannessen, skáld. Veitt verða 50 þúsund króna verðlaun fyrir það nafn sem valið verður. Hafi fleiri en einn gert tillögu um heitið verður dregið um hver hlýtur verðlaunin. Val nafnsins verður tilkynnt við vígslu safnaðarheimilisins þann 12. september n.k. Nú er bara að vitja dýpta sálar og leyfa andanum að verka. Nafnvísi er ávöxtur andans!